Ársskýrsla
2025

2025

Festi stendur sterkt eftir öflugt rekstrarár þar sem öll félög samstæðunnar skiluðu framúrskarandi árangri.

Vörusala

Framlegð af vörusölu

Laun/Framlegð

EBITDA

EBITDA/framlegð af vörusölu

Handbært fé frá rekstri

EBITDA og EBITDA/framlegð af vörusölu
Heildartekjur, framlegð/vörusala og hagnaður/heildartekjur

Við erum stolt af þeim árangri sem náðist á árinu og þökkum það tryggum viðskiptavinum og einstöku starfsfólki okkar um land allt.

Stjórnarhættir

Hjá Festi er unnið stöðugt að því að auka virði fyrir viðskiptavini, starfsfólk og hluthafa.

96
Eldsneytis- og rafhleðslustöðvar
27
Matvöruverslanir
6
Raftækjaverslanir
44
Apótek og útibú
12
Hjólbarða- og smurverkstæði
2
Vöruhús
2.846
Starfsmenn
62
Þjóðerni
75%
Flokkunarhlutfall
96%
Endurnýjanleg orkunotkun
25%
Samdráttur í losun GHG umfangi 1
B1
UFS einkunn Festi 2024
Fyrirtæki samstæðunnar

Félögin okkar eru leiðandi í íslensku samfélagi á mörkuðum með dagvörur, lyf, heilsuvörur, eldsneyti, raforku og raftæki.  Þjónustuloforð og leiðarljós okkar er: "Aukin lífsgæði - alla daga".

ELKO er stærsta raf­­­tækja­versl­un lands­ins og rek­­­ur fimm versl­an­­­ir í dag ásamt einni stærstu vef­versl­un lands­ins. Verslanir ELKO eru staðsettar í Lindum, Skeifunni, Granda, Flugstöð Leifs Eiríkssonar og á Akureyri.

Krónan er lágvöruverðsverslun sem leggur lykiláherslu á að koma réttu vöruúrvali til viðskiptavina á eins ódýran hátt og mögulegt er. Verslanir Krónunnar eru 26 talsins, auk Snjallverslunar.

Lyfja vinnur að því markmiði að lengja líf og auka lífsgæði. Lyfja starfrækir 44 apótek og útibú um allt landið auk vefverslunar og apps.

N1 er orku­­­sali Festi sam­­­stæð­unn­­­ar og sér fólki og fyr­ir­tækj­­­um fyr­­­ir elds­­­neyti, raf­­­orku, rekstr­­­ar­vör­­­um, veit­ing­­­um og af­­­þr­ey­ingu á þjón­ust­u­­­stöðv­­­­­um fé­lags­ins um allt land.

Bakk­inn vöru­hót­­­el rek­­­ur tvö vöru­hús, í Skarfa­­­görð­­­um og Kletta­­­­­görð­­­um, sem sér­­­hæfa sig í vöru­hýs­ingu, pökk­un, vöru­­­merk­ingu, af­greiðslu og dreif­ingu á vör­­­um fyr­­­ir við­­­skipta­vini.

Yrkir eignir annast rekstur og umsýslu fasteigna sem tilheyra samstæðu Festi, ásamt því að þróa bæði eignir og lóðir með það fyrir augum að auka verðmæti þeirra og arðsemi.

Festi sameinar drifkrafta leiðandi fyrirtækja til að bæta daglegt líf og skapa verðmæti í sátt við samfélagið.